Fá tilboð í verk

Drenlagnir
Drenlagnir gegna því mikilvæga hlutverki að beina vatni frá útveggjum og koma þannig í veg fyrir raka og skemmdir. Vatn getur safnast við hús sem standa í halla eða þar sem jarðvegur hleypir regnvatni ekki niður. Drenlagnir eru grafnar niður umhverfis húsið og beina vatni frá húsinu. Hafa þarf í huga ástand lóðar og skipuleggja framkvæmdir vandlega til að valda sem minnstu raski. Þá er hægt að handgrafa niður að sökkli og meta þörfina fyrir drenlagnir áður en farið er í framkvæmdir.
Skólplagnir
Við tökum að okkur að endurnýja skólplagnir frá upphafi til enda. Ef húsið er byggt fyrir 1965 er gott að athuga ástand lagna. Steypurör sem voru notuð á þeim tíma hafa oft sigið í jarðvegi eða farið í sundur. Helstu einkenni þess að skipta þarf um skólplagnir er að raki myndast í gólfi og ólykt myndast. Hafðu samband við okkur ef þig grunað að endurnýja þarf skólplagnir og við förum yfir verkefnið saman.
